Alvarlegt atvik átti sér stað fyrir utan skemmtistað í miðborginni í nótt þar sem maður var stunginn. Ekki liggja enn fyrir upplýsingar um alvarleika áverka hans, en hann var fluttur á slysadeild til aðhlynningar. Gerandinn flúði af vettvangi og er hans enn leitað.