Konungsdóttirin Mábil sterka var ein af fræknustu hetjum íslenskra bókmennta í 500 ár. Hún var öðrum fremri í riddaralistum og drýgði miklar hetjudáðir í bardögum, oftar en ekki með óhefðbundnum aðferðum. Hetjudáðir hennar voru sagðar í Mábilar rímum sem komu fyrst fram í handriti á 15. öld en mjög fá dæmi eru um konur sem aðalpersónur í rímum þess tíma.Rímurnar eru einstakar að mörgu leyti, hafa kynferðislegan undirtón, eru klúrar á köflum og segja meðal annars frá því þegar Mábil missir kraft til bardaga þegar hún er á blæðingum. Nú hafa þessar rímur birst í fyrsta sinn á prenti í bókinni Meyjar og völd – Rímur og saga af Mábil sterku eftir Valgerði Kr. Brynjólfsdóttur.Valgerður var nýlega tilnefnd til viðurkenningar Hagþenkis fyrir bókina þar sem finna má þrjár gerðir rímnanna og fræðil