Þættirnir Heated Rivalry komu eins og þruma úr heiðskíru lofti á sjónvarpsskjáinn í desember. Velgengni þáttanna hefur verið ótrúleg og kom öllum í skemmtanaiðnaðinum í Hollywood í opna skjöldu. Í Heimskviðum köfuðum við ofan í hvað gerir þessa þætti og velgengni þeirra einstaka. FANTASÍAN Í KRINGUM BLÍÐU OG RÓMANTÍK Þið þurfið eiginlega að hafa búið í helli síðustu mánuði til að hafa ekki alla vega heyrt minnst á Heated Rivalry. Þetta eru sjónvarpsþættir sem hafa gjörsamlega tröllriðið öllu síðan þeir voru frumsýndir fyrir rétt rúmlega tveimur mánuðum. En ef þið komið af fjöllum þá ætla ég að segja ykkur allt um þættina.Byrjum á byrjuninni. Heated Rivalry eru byggðir á bókaflokknum Game Changers eftir kanadíska rithöfundinn Rachel Reid. Þættirnir eru aðallega byggðir á annarri bókinni