Lögregla leitar manns sem stakk annan með hnífi vð skemmtistað í miðborginni í gærkvöld eða nótt.Lögreglukonur að störfum í miðborg Reykjavíkur. Mynd úr safni.RÚVEkki liggur fyrir hve alvarlegir áverkar mannsins eru, að því er segir í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Maður var handtekinn í miðborginni, sem braut rúðu í lögreglubíl og kýldi lögreglumann og tveir voru handteknir vegna líkamsárásar í Grafarholti.Tveir ungir drengir voru gripnir við að brjótast inn í bíla í Kópavogi. Málið var leyst með aðkomu foreldra og barnaverndar. Lögreglumenn þurftu að hafa afskipti af fólki í margs konar ölvunar- og vímuástandi ásamt því að stilla til friðar vegna óláta og slagsmála á heimili í Árbænum.