Japanski forsætisráðherrann Sanae Takaichi vonast til að tryggja Frjálslynda lýðræðisflokknum meirihluta í þingkosningum í dag. Skoðanakannanir benda til að það takist auðveldlega þrátt fyrir að snjóað hafi talsvert víða um Japan, þar á meðal í höfuðborginni Tókýó.Áratugir eru síðan kosningar voru haldnar í Japan á þessum árstíma. Ef marka má kannanir gæti flokkur Takaichi og samstarfsflokkurinn náð allt að 310 sætum að teknu tilliti til óákveðinna kjósenda og veðuraðstæðna, en 233 sæti nægja til að tryggja meirihluta.Það yrði besta niðurstaða flokksins síðan 2017 þegar Shinzo Abe, lærifaðir Takaichi og fyrrverandi forsætisráðherra, náði svipuðum árangri. Abe var myrtur árið 2022.Takaichi var kjörin leiðtogi Frjálslynda lýðræðisflokksins í október og varð forsætisráðherra með því að tryggj