Portúgalir kjósa sér nýjan forseta í dag þar sem valið stendur milli þeirra Andrés Ventura, frambjóðanda jaðarhægriflokksins Chega, og António José Seguro, frambjóðanda Sósíalistaflokksins.Antonio Jose Seguro og Andre Ventura mættust í kappræðum 27. janúar.EPA / ANTONIO PEDRO SANTOSEnginn náði meirihluta í fyrri umferðinni en þessir tveir urðu efstir og því varð að efna til annarrar umferðar í fyrsta sinn síðan 1986.Skoðanakannanir sýna meira fylgi við Seguro og margir kjósendur hafa lýst andúð á harðlínustefnu Ventura. Sigurvegarinn tekur við forsetaembættinu af Marcelo Rebelo de Sousa sem hefur setið tvö kjörtímabil og mátti því ekki gefa kost á sér að nýju.