Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir áfram oddviti Framsóknar í Reykjanesbæ

Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir forseti bæjarráðs Reykjanesbæjar verður áfram oddviti Framsóknarflokksins í sveitarstjórnarkosningunum 16. maí. Frambjóðendur Framsóknar í Reykjanesbæ.Aðsend/Framsóknarfélagið í Reykjanesbæ / Framsóknarfélagið í ReykjanesbæKosið var um 1. til 4. sæti listans. Halldóra hlaut 519 atkvæði í prófkjöri sem haldið var í gær og kjörstjórn segir það fjölmennasta sem haldið hefur verið. Rúm 68% þeirra 876 sem voru á kjörskrá greiddu atkvæði. Róbert Jóhann Guðmundsson fékk 268 atkvæði í fyrsta til annað sæti og Díana Hilmarsdóttir 337 atkvæði í fyrsta til þriðja sæti. Í fjórða sæti verður Birgir Már Bragason með 396 atkvæði í fyrsta til fjórða sæti. Auðir seðlar voru þrír.
Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir áfram oddviti Framsóknar í Reykjanesbæ

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta