Englendingurinn Will Lewis hefur látið af störfum sem forstjóri og aðalútgefandi The Washington Post og tekur uppsögnin gildi samstundis. Fáeinir dagar eru síðan hundruðum blaðamanna og annars starfsfólks blaðsins, sem er í eigu auðkýfingsins Jeffs Bezos, var sagt upp störfum í sparnaðarskyni. Það olli mikilli reiði meðal lesenda blaðsins. Áskrifendur Washington Post og starfsfólk hafa gagnrýnt þær aðferðir sem Lewis hefur beitt til að snúa við taprekstri blaðsins. Einn úr starfsliði þess deildi tölvupósti Lewis á samfélagsmiðlum þar sem hann segir réttast að stíga til hliðar á þessum tíma eftir erfiðar ákvarðanatökur sem ætlað var að tryggja starfsemina um ókomin ár. Jeff D'Onofrio, sem varð fjármálastjóri Washington Post í fyrra, tekur við sem forstjóri samkvæmt tilkynningu frá Washingto