Enginn var fluttur á slysadeild eftir harðan árekstur tvegga bíla nærri gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Háaleitisbrautar í Reykjavík að sögn varðstjóra hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Þrír sjúkrabílar eru á slysstað. Mynd úr safni.RÚV / Ragnar VisageÞví sé ekki vitað hve margir voru í bílunum. Tilkynnt var um slysið laust fyrir klukkan eitt. Vitni segir í samtali við fréttastofu að bílarnir séu gerónýtir. Þrír sjúkrabílar og dælubíll voru kallaðir til að sögn varðstjórans og laust fyrir klukkan tvö var verið að hreinsa vettvanginn og draga bílflökin brott. Lögreglumenn beindu umferð annað meðan viðbragðsaðilar unnu sín verk. Fréttin var uppfærð með upplýsingum að enginn var fluttur á slysadeild.