Orri Björnsson verður oddviti Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Merki Sjálfstæðisflokksins.SjálfstæðisflokkurinnOrri hlaut 754 atkvæði í 1. sæti, eða 51,6 af hundraði. Orri hefur verið oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði frá því Rósa Guðbjartsdóttir baðst lausnar sem bæjarstjóri á síðasta ári. Kosið var milli 15 frambjóðenda um sex efstu sætin í prófkjörinu. Kristín María Thoroddsen verður í öðru sæti en hún hlaut 670 atkvæði í 1. til 2. sæti, eða 45,9 prósent, og Viktor Pétur Finnsson verður þriðji með 46,1 prósent atkvæða í 1. til 3. sætið. Á hæla þeirra koma Guðbjörg Oddný Jónasdóttir, Kristinn Andersen og Helga Björg Loftsdóttir.