Norsk-franski rannsóknardómarinn Eva Joly leggur til að sérstök, óháð þingnefnd verði sett á laggirnar í Noregi til að hafa auga með athæfi auð- og valdastéttarinnar. Mjög líklegt sé að fólk úr hennar röðum hafi framið alvarlega glæpi vegna skorts á eftirliti.Tilsjón sé orðin nauðsyn í ljósi þess hve áberandi Norðmenn eru í Epstein-skjölunum, sem birt voru fyrir rúmri viku, þeirra á meðal krónprinsessan Mette-Marit og Thorbjørn Jagland, fyrrverandi forsætisráðherra. Efnahagsbrotadeild lögreglunnar hefur hans mál til rannsóknar.„Það er ekki nóg að hver og einn gæti að sér,“ segir Joly í samtali við NRK. Hún segir meðal annars þurfa að bera saman hversu auðugt fólk er þegar það tekur að sér stjórnunarstarf og þegar það lætur af því. „Ef þú getur ekki útskýrt aukið ríkidæmi er það glæpur,“ se