Orri Björnsson, bæjarfulltrúi, mun leiða lista Sjálfstæðisflokksins í Hafnafirði í vor og tekur þannig við oddvitasætinu af Rósu Guðbjartsdóttur sem er farin á þing. Kristín María Thoroddsen, bæjarfulltrúi, er í öðru sæti listans og Viktor Pétur Finnsson í því þriðja.