Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

„Eitt stærsta áfall sem maður getur upplifað“

Foreldrar barns sem kærðu fyrrum starfsmann leikskólans Múlaborgar vegna gruns um kynferðisbrot vilja að kerfið grípi betur börn og fjölskyldur sem verða fyrir slíku áfalli. „Af því að þetta er eitt stærsta áfall sem maður getur upplifað,“ segir móðirin.Hún segir að þrátt fyrir allt hafi það verið erfið ákvörðun að kæra starfsmanninn til lögreglu. „ Af því að þetta er náttúrulega hugsun sem maður vill ekki hugsa til enda, að mögulega hafi eitthvað svona gerst á griðastað, á leikskólanum.“Lögregla hafði til rannsóknar grun um brot gegn minnst tíu börnum á Múlaborg. Eitt mál leiddi til ákæru en lögregla hætti rannsókn flestra málanna. Fjórir foreldrar hafa kært niðurfellingu mála til ríkissaksóknara sem hefur þegar vísað tveimur málum aftur til lögreglu, þar á meðal máli barnsins þeirra.
„Eitt stærsta áfall sem maður getur upplifað“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta