Þór Sigurgeirsson var í kvöld endurkjörinn sem oddviti Sjálfstæðisflokksins á Seltjarnarnesi. Hann hlaut alls 566 atkvæði í 1. sæti eða 73,8% atkvæða. Þór hefur verið oddviti D-listans síðan 2022. Kosið var um fimm efstu sæti framboðslista Sjálfstæðisflokksins á Seltjarnarnesi og eru frambjóðendur eftirfarandi: 1. sæti Elísabet Ingunn Einarsdóttir. 2. sæti Svana Helen Björnsdóttir. 3. sæti Magnús Benediktsson. 4. sæti Björn Jóhannesson. Alls voru 792 atkvæði greidd í prófkjörinu, þar af voru auðir og ógildir seðlar 25 talsins. Kjörsókn var 58,3%.Þór Sigurgeirsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins á Seltjarnanesi.RÚV / Ragnar Visage