Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

María Ellen Steingrímsdóttir nýr oddviti Viðreisnar í Kópavogi

María Ellen Steingrímsdóttir var kjörin nýr oddviti Viðreisnar í Kópavogi í kvöld. Hún mun því leiða flokkinn í komandi sveitarstjórnarkosningum í maí. Í öðru sæti var Pétur Björgvin Sveinsson og í því þriðja Arnar Grétarsson. Úrslitin voru kynnt á kosningavöku Viðreisnar í kvöld.María Ellen hlaut alls 240 atkvæði í fyrsta sætið, Pétur Björgvin hlaut 272 atkvæði í 1. til 2. sæti og Arnar hlaut 319 atkvæði í 1. til 3. sæti. „Ég er mjög þakklát fyrir það traust sem Viðreisnarfólk í Kópavogi hefur sýnt mér og einstaklega þakklát samframbjóðendum mínum fyrir drengilega og góða baráttu,“ segir María Ellen. Á kjörskrá voru 823 og var kjörsókn 76%.Arnar Grétarsson, María Ellen Steingrímsdóttir og Pétur Björgvin Sveinsson.Viðreisn
María Ellen Steingrímsdóttir nýr oddviti Viðreisnar í Kópavogi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta