Hvernig lifir maður af lífeyrinum sínum á Íslandi án þess að eiga fasteign? Fyrir Braga Jónsson var svarið einfalt – hann fór. Þegar hann hætti að vinna árið 2022 blasti við raunveruleiki sem margir eldri Íslendingar þekkja: hár húsnæðiskostnaður, dýr framfærsla og lítið svigrúm. Í stað þess að reyna að láta dæmið ganga upp ákvað Bragi að nýta sér óhefðbundna lausn.