Tónlistarmaðurinn John Grant verður með stórtónleika í Eldborg í Hörpu laugardaginn 13. júní á vegum Listahátíðar. John Grant hefur um árabil verið búsettur á Íslandi og gegnt áberandi hlutverki í innlendu og alþjóðlegu tónlistarlífi, bæði sem lagahöfundur og flytjandi. Ferill hans spannar yfir tvo áratugi og einkennist af fjölbreyttri notkun tónlistarstíla, einlægni og húmor. Hann flytur úrval laga frá ferlinum á tónleikunum, meðal annars af nýjustu plötu sinni The Art of the Lie sem kom út 2024. John kíkti í Morgunverkin á Rás 2 og sagði Andra Frey Viðarssyni frá tónleikunum.„Mér finnst þetta andstyggilegt sem er að gerast í Bandaríkjunum,“ segir bandaríski tónlistarmaðurinn John Grant sem hefur verið búsettur á Íslandi í yfir áratug. Hann kemur fram á stórtónleikum á vegum Listahátíðar