Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

„Bandaríkin verja ekki Evrópu okkar vegna“

Tvær nýjar ræðismannaskrifstofur voru opnaðar á Grænlandi í gær. Utanríkisráðherra Kanada kom í heimsókn til að vera viðstödd opnun ræðismannaskrifstofu landsins, sem vill svo til að er í sama húsnæði og íslenska ræðismannaskrifstofan í elsta hluta Nuuk, höfuðstaðar Grænlands.Utanríkisráðherrar Grænlands og Danmerkur segja viðræður við Bandaríkin um Grænland ekki komnar á lokastig, en stefnt sé áfram að lausn.Sérfræðingur í málefnum Norðurslóða segir áhuga Bandaríkjanna á að taka yfir Grænland eingöngu til kominn vegna þess að Donald Trump vilji stækka landsvæði Bandaríkjanna. Þeir séu aðeins tilbúnir að taka þátt í vörnum Evrópu ef það samræmist þeirra hagsmunum.
„Bandaríkin verja ekki Evrópu okkar vegna“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta