Það var mikið sjónarspil sem blasti við Ólafi Magnússyni drónaflugmanni þegar hann ók um Reykjanesbæ í dag. Skammt undan landi voru hvalir og súlur að gæða sér á æti sem leyndist undir yfirborðinu.„Ég snarstoppaði og fór út með drónann,“ segir Ólafur í samtali við fréttastofu. Hann er ekki viss um af hvaða tegund hvalirnir voru en segir að þeir hafi verið ekki færri en fimm.„Þeir stukku ekkert, komu upp með uggana og voru þarna í torfunum í kringum súluna.“Á fuglavefnum segir að súlan sé oft nefnd drottning Atlantshafsins vegna þess hve tíguleg hún er. Súlukastið er í það minnsta tilkomumikið, eins og má sjá í meðfylgjandi myndbandi frá Ólafi.