Dæmi eru um að fólk veigri sér við að koma á bráðamóttöku Landspítala í kjölfar berklasmits starfsfólks. Yfir 20 smit hafa greinst í gistiskýlum, þar af tvö virk.Í vikunni reyndust átta starfsmenn á bráðamóttöku Landspítala vera útsettir fyrir berklum sem þýðir að þeir höfðu komist í tæri við berklabakteríuna og eru með svokallaða sofandi berkla en eru hvorki veikir né smitandi.Frá Landspítala fengust þær upplýsingar að nokkuð hafi verið um að fólk veigri sér við að koma á bráðamóttökuna vegna þessa og hringi á undan sér til að athuga hvort óhætt sé að koma.Leitt var líkum að því að uppruna smitanna væri að leita í gistiskýlum eftir að fréttir bárust af því að berklasmitaður karlmaður, sem lést í janúar, hefði verið meðal gesta þeirra en smit hafa ítrekað greinst hjá heimilislausu fólki.Sp