Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Orri Hlöðversson kjörinn oddviti Framsóknar í Kópavogi

Orri Hlöðversson var kjörinn oddviti Framsóknarflokksins í Kópavogi. Hann leiddi áður lista Framsóknar í sveitarstjórnarkosningum árið 2022. Kosning fór fram á fundi fulltrúaráðs Framsóknarfélaganna í Kópavogi og hafnaði þar Björg Baldursdóttir bæjarfulltrúi í öðru sæti. Í þriðja sæti hafnaði Gunnar Sær Ragnarsson, fjórða sæti Svava Friðgeirsdóttir og í því fimmta Heiðdís Geirsdóttir. Orri er bæjarfulltrúi Framsóknar og formaður bæjarráðs Kópavogsbæjar. Hann er fæddur og uppalinn í Kópavogi og hefur einnig starfað sem bæjarstjóri Hveragerðisbæjar. Aðsend / Framsóknarflokkurinn
Orri Hlöðversson kjörinn oddviti Framsóknar í Kópavogi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta