Tilkynnt var um fjögur efstu sæti á framboðslista Framsóknar í kvöld. Kosið var um fjögur efstu sætin á fundi Framsóknar í dag. Niðurstaðan var eftirfarandi. 1. sæti Einar Þorsteinsson, borgarfulltrúi 2. sæti Magnea Gná Jóhannsdóttir, borgarfulltrúi 3. sæti Þorvaldur Daníelsson, framkvæmdastjóri Hjólakrafts 4. sæti Halldór Bachman, kynningarstjóri Almenna lífeyrissjóðsins Einar og Magena voru bæði sjálfkjörin í sín sæti þar sem engin bauð sig fram á móti þeim. „Ég er þakklátur fyrir það traust sem mér er sýnt með því að fela mér að leiða lista Framsóknar í kosningunum í vor,“ segir í Einar Þorsteinsson í tilkynningu. Halldór Bachman kynningarstjóri Almenna lífeyrissjóðsins, Einar Þorsteinsson, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, Magnea Gná Jóhannsdóttir borgarfulltrúi Framsóknarflokks