Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók einn fyrir þjófnað í Skeifunni í dag. Í dagbók lögreglunnar kemur fram að öryggisvörður hafi elt mann sem stal vörum úr verslun. Lögreglan hafði uppi á þessum einstaklingi og handtók hann. Fram kemur að málið sé í rannsókn.