Prófessor við Háskóla Íslands segir hið opinbera þurfa að endurskoða greiðsluþátttökukerfi vegna heilbrigðisþjónustu. Tekjulægri hópar eins og fólk með örorku, ungt fólk og einstæðir foreldrar sækja sér síður heilbrigðisþjónustu vegna kostnaðar.Fólk með örorku ber tvöfalda byrði er kemur að lífskjörum og heilbrigðisþjónustu. Það glímir við lakara heilsufar og þörf fyrir meiri þjónustu en þurfi jafnframt að standa fyrir meiri útgjöldum úr ieigin vasa þrátt fyrir að vera almennt með lægri tekjur.Þetta eru niðurstöður rannsóknarinnar „Lífskjör og heilbrigðisþjónusta á Íslandi“ sem framkvæmd var af Félagsvísindastofnun HÍ fyrir Öryrkjabandalagið og Rúnar Vilhjálmsson, prófessor í félagsfræði við heilbrigðisvísindasvið HÍ.„Öryrkjar verja tæpum 6% af ráðstöfunartekjum síns heimilis til heilbrigð