Þórhallur Jónsson, varabæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins á Akureyri, telur flokksstarfi sínu fyrir Sjálfstæðisflokkinn lokið eftir að hann laut í lægra haldi gegn Berglindi Ósk Guðmundsdóttur í oddvitaslag. Hann segir margt rotið innan flokksins á Akureyri.