„Sjálfsstjórn dugir ekki lengur til. Við þurfum stjórnvald sem hefur hemil á háttsettum aðilum og ráðherrum,“ segir spillingarfræðingurinn og lögfræðingurinn Eva Joly, sem Íslendingum er vel kunn síðan á bankahrunsárunum, í morgunsjónvarpsþættinum Helgemorgen í norska ríkisútvarpinu NRK.