Kjörbúðin Bryggjustöðin var opnuð á Þingeyri í dag. Búðina reka hjónin Dagbjartur Bjarnason og Guðrún Steinþórsdóttir og viðurkennir Guðrún að það verði áskorun að halda henni opinni allan ársins hring.Ráðast þurfti í miklar endurbætur á húsinu sem var byggt fyrir um þrjátíu og fimm árum síðan. Sjoppan Hamona var áður eina verslunin í þorpinu en hún lokaði 1. ágúst á síðasta ári. 50 kílómetra leið um fjallveg er í næstu verslanir á Ísafirði.Laga þurfti meðal annars rafmagnið í húsinu sem er í eigu N1. Guðrún segir það hafa verið frumskilyrði að búðin yrði opin allt árið.„Að hafa svona litla matvörubúð þegar oft og tíðum eru erfiðar samgöngur, sem reyndar hafa ekki verið í vetur sem betur fer,“ segir Guðrún.„Þetta hefur tekið sinn tíma en þökk sé N1 þá fórum við í heilmiklar endurbætur,“ se