Mynd sem sýnir ungt ljón hvílast seldist fyrir átján milljónir Bandaríkjadala á uppboði Sothebys í New York í vikunni. Það eru ríflega 2,2 milljarðar króna. Engin teikning hollenska meistarans hefur verið seld fyrir viðlíka verð á uppboði. Fyrra met hljóðaði upp á 3,7 milljónir dala.Seljendurnir voru tveir bandarískir viðskiptamenn, Thomas Kaplan og Jon Ayers. Söluandvirðið fellur í skaut góðgerðarfélags þeirra, Panthera, sem hefur það að markmiði að vernda villta stórketti.„Það eina sem ég hef meiri ástríðu fyrir en Rembrandt er verndun dýralífs,“ sagði Kaplan í aðdraganda uppboðsins. Hann vilji draga fleiri að málstaðnum og það geti hann gert með því að selja myndina í þágu Panthera. EINA TEIKNING REMBRANDTS AF LJÓNI Í EINKAEIGU Myndin kemur úr hinni svokölluðu Leiden-safneign. Það er