Töluvert landrof hefur orðið í Reynisfjöru síðustu daga. Stór bakki hrundi úr hlíðum Reynisfjalls alveg að viðvörunarskiltunum við fjöruna.Alma Ómarsdóttir fréttamaður var í Reynisfjöru ásamt Guðmundi Bergkvist tökumanni. Hún segir að þrátt fyrir að þau hefðu séð ljósmyndir af fjörunni áður en þau komu þangað hafi þeim brugðið þegar þau sáu hversu mikið landrof hefði átt sér stað.Guðni Einarsson, bóndi og landeigandi, er fæddur og uppalinn á svæðinu og segist ekki hafa séð sambærilegt landrof áður. „Nei, þetta er það langmesta sem við höfum séð,“ segir hann og telur að ekki séu heimildir um slíkt og þá sérstaklega á svo stuttum tíma.„Við höfum svo sem oft áður orðið vitni að því að það er mikil hreyfing á sandinum hérna, fram og til baka á milli Dyrhólaeyjar og Reynisfjalls,“ segir hann.Ha