Berglind Ósk Guðmundsdóttir, sem sat á þingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn á síðasta kjörtímabili, er nýr oddviti flokksins á Akureyri. Hún var kjörin á röðunarfundi fulltrúaráðs flokksins í dag fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Heimir Örn Árnason, núverandi oddviti, skipar annað sætið. Þau Berglind og Heimir gerðu með sér bandalag í aðdraganda fundarins, að hún myndi sækjast eftir oddvitasætinu en Heimir öðru sætinu. Þau myndu styðja hvort annað þar. Varabæjarfulltrúinn Þórhallur Jónsson var ósáttur við þetta og bauð sig fram í fyrsta sætið gegn Berglindi. Berglind fékk 61 atkvæði í oddvitasætið, en Þórhallur 55. Heimir fékk 74 atkvæði í annað sætið, en Þórhallur 45.Arna Rut Gunnarsdóttir var kjörin í þriðja sætið. Hún hlaut 60 atkvæði en Þorsteinn Kristjánsson hlaut 56 atkvæði.