Áhorfendur á Vetrarólympíuleikunum bauluðu einhverjir á bandaríska varaforsetann JD Vance þegar hann var viðstaddur opnunarhátíð leikanna í Mílanó í gær. Ekki mátti heyra baulið í útsendingu bandarísku sjónvarpsstöðvarinnar NBC og þulir þar gáfu því engan gaum, þó hið gagnstæða ætti við um kanadíska kollega þeirra hjá CBC.