Lögmaður manna sem dvöldu í Bakkakoti á Rangárvöllum sem börn segist ekki hafa átt von á svo skjótum viðbrögðum stjórnvalda. Tugir manna og kvenna hafa leitað til hans eftir að Kveikur greindi frá aðstæðum drengja í Bakkakoti sem segjast hafa verið beittir ofbeldi þar.„Það er gríðarlegur fjöldi, ef ég á að giska: það eru komnir yfir 30 sem ég hef náð að svara, en það er fullt af fólki sem ég hef ekki náð að svara,“ segir Bjarki Heiðar Bjarnason lögmaður. SUMIR SEGJA FRÁ Í FYRSTA SKIPTI ÁRATUGUM SÍÐAR „Það eru tólf komin formlega á þessari stundu, þá er ég búinn að taka við þau viðtal og skrifa niður söguna,“ segir Bjarki. Hann segir að síðan þurfi hann formlegt umboð viðkomandi og ferlið geti tekið nokkurn tíma. „Það eru svo tíu í viðbót sem ég hef verið í sambandi við og hafa sagt mér