Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Stofnuðu popphljómsveit til þess að koma í veg fyrir heimsendi

Teiknimyndahljómsveitin ÞESAL skaut fyrst upp kollinum í jólalagakeppni Rásar 2 árið 2024 og lenti í þriðja sæti með lagið Blankur um jólin. Sveitin hefur gefið út tvö önnur lög og vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum.Í hljómsveitinni eru þau Ómar Vídó, Kata Backmann og Guðmundur Elí. Hvert þeirra á sitt teiknimyndasjálf sem klæðist ávallt sama litnum. Ómar grænum, Kata rauðum og Guðmundur bláum. „Þetta er partur af okkar hljómsveitar-identity,“ segir Kata.ÞESAL varð til þegar geimvera að nafni Marens bankaði upp á hjá Ómari. Marens hélt því fram að Ómar þyrfti að búa til popphljómsveit með sér því annars yrði heimsendir. Ómar samþykkti það og slóst í för með Marens í ævintýri um geiminn.Þá víkur sögunni til Kötu því sjálfur Jesús kom í heimsókn til hennar þegar hún var að vinna sem smiðu
Stofnuðu popphljómsveit til þess að koma í veg fyrir heimsendi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta