Formaður Læknafélags Íslands segir stöðuna á Landspítalanum aldrei hafa verið verri, sífellt séu ný met slegin í fjölda sem liggi á bráðamótttökunni og einnig hafi nýtt met fallið á dögunum en nú bíði yfir hundrað manns á Landspítalanum eftir hjúkrunarrými. Hún segir nýja hugmynd að lausn með ólíkindum og spyr hvort næsta skref sé að leggja aldrað fólk inn á heimili landsmanna?