Aðalfundur Hestamannafélagsins Sleipnis og Sleipnishallarinnar ehf. á Selfossi var haldinn í vikunni. Auk hefðbundinna aðalfundarstarfa undirrituðu Bragi Bjarnason, bæjarstjóri Árborgar og Berglind Sveinsdóttir, formaður Sleipnis, nýjan fimm ára þjónustusamning milli Árborgar og félagsins. Samningurinn markar mikilvægt skref í áframhaldandi og öflugu samstarfi aðila.