Hugmyndir um að tvímenna í herbergjum íbúa hjúkrunarheimila til að bregðast við skorti á legurýmum á Landspítala eru með ólíkindum, að mati Steinunnar Þórðardóttur, formanns Læknafélagsins. Það er lagt til í minnisblaði Landspítala til heilbrigðisráðuneytisins frá því í upphafi árs.„Í þessu samhengi ber að halda því til haga að hjúkrunarheimili eru heimili þeirra sem þar búa og því lítill munur á því að leggja ókunnugt fólk inn á herbergi íbúa hjúkrunarheimila og á herbergi á öðrum heimilum í landinu. Er næsta skref mögulega að leggja aldrað fólk inn á heimili landsmanna almennt?“ skrifar Steinunn í aðsendri grein á Vísi.Eldri einstaklingum sem liggja á legudeildum spítalans og bíða eftir að komast að á hjúkrunarheimili hefur fjölgað að undanförnu og eru nú orðnir yfir 100 talsins. Á sama