Átján búddistamunkar, og einn hundur, eru við það að ljúka nærri fjögur þúsund kílómetra friðargöngu frá Texas í Bandaríkjunum til höfuðborgarinnar Washington D.C. Með göngunni vilja þeir hvetja fólk til daglegra góðverka, efla frið og samúð. FRÁ TEXAS TIL WASHINGTON D.C. „Þeir ganga kílómetra eftir kílómetra á dag, hvenær gerðir þú síðast eitthvað svona líkamlega erfitt til að senda skilaboð?“ segir Natalie Farias, íbúi í Charlotte í Norður-Karólínu. Hún var eins og svo margir mætt til að fylgjast með munkunum ganga í gegnum Charlotte um miðjan janúar.Munkar sem aðhyllast búddatrú hafa gengið nærri fjögur þúsund kílómetra friðargöngu frá Texas til höfuðborgar Bandaríkjanna, Washington D.C. Sumir þeirra ganga berfættir. Tilgangur göngunnar er að hvetja fólk til góðverka og efla frið.Mun