Það er flughált á Þröskuldum á sunnanverðum Vestfjörðum. Þar sátu flutningabílar fastir í morgun og erfitt að komast fram hjá. Frá þessu er sagt á vef Vegagerðarinnar, umferdin.is. Einnig er flughált víða í Reykhólasveit og snjóþekja víða á Suðurfjörðum. Unnið er að mokstri og hálkuvörnum.Það er víða hált á vegum landsins í morgunsárið. Hálka eða hálkublettir eru til að mynda á stórum hluta þjóðvegar 1, utan Suðurlands.Í mörgum landshlutum er hálka eða hálkublettir á flestum leiðum. Flughált er í Kjós og á sunnanverðu Snæfellsnesi, milli Haffjarðarár og Búða.