Í dag verður austlæg eða breytileg átt, 3 til 10 metrar á sekúndu, en strekkingur austantil. Úrkomusvæði hangir yfir vestanverðum Breiðafirði og Vestfjörðum og þar má búast við dálítilli slyddu eða rigningu fram yfir hádegi. Norðaustan- og austantil verður éljagangur en að mestu bjart sunnan- og vestanlands.Norðaustan 5 til 10 metrar á sekúndu á morgun, en 10 til 15 norðvestantil og við suðausturströndina. Víða snjókoma eða él, en léttskýjað á sunnan- og vestanverðu landinu. Vægt frost en yfirleitt frostlaust við sjávarsíðuna að deginum.