Nýr golfvöllur á norðanverðu Álftanesi er hluti af tillögu um framtíðarskipulag svæðisins sem er í forkynningu. Formaður Golfklúbbs Álftaness segir enn langt í að hann flytji á nýjan völl en vonast til að hann verði tilbúinn áður en klúbburinn þarf að yfirgefa þann gamla.