Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Rafmagnslaust um nær allt land vegna loftárása Rússa

Rafmagnslaust er um stóran hluta Úkraínu eftir umfangsmiklar loftárásir Rússlandshers í nótt. Ríkisorkufyrirtækið Ukrenergo greinir frá þessu í færslu á samskiptamiðlinum Telegram í morgun. „Við höfum neyðst til að grípa til neyðarlokana í orkukerfinu í flestum héruðum vegna þeirra skemmda sem óvinurinn hefur valdið,“ segir í færslunni. Rússar hafa undanfarinn mánuð gert ítrekaðar árásir á orkuinnviði Úkraínu þar sem ríkir fimbulkuldi. Frostið hefur farið niður undir tuttugu gráður. Þríhliða viðræður Úkraínumanna, Rússa og Bandaríkjamanna voru haldnar fyrr í vikunni og í gær sagði Donald Trump Bandaríkjaforseti „afar gott“ samtal í gangi.
Rafmagnslaust um nær allt land vegna loftárása Rússa

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta