Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Clinton-hjónin vilja að vitnisburður þeirra um Epstein verði heyranda hljóði

Bill og Hillary Clinton krefjast þess að vitnisburður þeirra fyrir þingnefnd 27. febrúar um tengsl þeirra við fjárfestinn og kynferðisbrotamanninn Jeffrey Epstein verði öllum aðgengilegur.Clinton hjónin við innsetningarathfön Donalds Trump í janúar 2025.EPA / SHAWN THEW / POOLForsetinn fyrrverandi lýsti þessu yfir í færslu á samfélagsmiðlinum X þar sem hann hafði eftir nefndarformanninum James Comer að vitnisburðurinn verði myndaður á bak við luktar dyr. „Hverjum gagnast það?“ spyr Clinton.„Ekki fórnarlömbum Epsteins, sem verðskulda réttlæti. Ekki almenningi, sem verðskuldar sannleikann. Þetta þjónar aðeins hagsmunum stjórnmálamanna. Þeir vilja ekki finna staðreyndir, þetta er hrein pólítík,“ segir Clinton í færslunni.Færsla Bills Clintons á samskiptamiðlinum X.Skjáskot X / Skjáskot X/Bill
Clinton-hjónin vilja að vitnisburður þeirra um Epstein verði heyranda hljóði

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta