Sendinefnd Bandaríkjanna og Bandaríkjaforseti segja óbeinar viðræður í Óman um kjarnorkusamning við Írani hafa gengið vel, þær fyrstu um átta mánaða skeið.Abbas Araghchi, utanríkisráðherra Írans sem fór fyrir sendinefndinni, tekur í sama streng og segir kurteislega hafa verið skipst á skoðunum en eingöngu um kjarnorkusamninginn. Hann kvaðst jafnframt vona að Bandaríkjamenn hættu ógnunum og þrýstingi svo viðræðurnar gætu haldið áfram.Fulltrúar beggja ríkja hefðu samþykkt að fundum verði fram haldið snemma í næstu viku. Donald Trump Bandaríkjaforseti staðfestir það. Steve Witkoff og Jared Kushner, erindrekar Bandaríkjanna, vildu líka að stuðningur Íransstjórnar við vígasveitir yrði ræddur ásamt eldflaugaáætlun hennar og harðri framgöngu gegn mótmælendum í landinu.Svo fór ekki og skömmu eftir