Fjórir geimfarar á vegum bandarísku geimferðastofnunarinnar NASA, áhöfn 12 verða í næstu viku sendir til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar til að taka við verkum áhafnar 11 sem send var til jarðar í janúar vegna veikinda eins úr hópnum.Óvissa hafði ríkt um hvort af leiðangrinum yrði vegna þess að Flugmálastofnun Bandaríkjanna hafði fyrr í vikunni bannað notkun Falcon 9 flaugar SpaceX vegna bilunar í kveikjukerfi hennar.Banninu hefur verið aflétt og því stendur til að leggja af stað á miðvikudag. Einnig var gerð skyndileg breyting á áhöfninni í nóvember þegar rússneska geimfaranum Oleg Artemyev var skipt út fyrir landa sinn Andrey Fedyaev.Óháðir rússneskir miðlar segja Artemyev hafa notað síma sinn til að senda leynilegar upplýsingar til Kremlar en rússneska geimferðastofnunin Roscosmos segir hon