Donald Trump Bandaríkjaforseti birti í gær myndskeið á samfélagsmiðlinum Truth Social sem sýndi forsetahjónin fyrrverandi, Barack og Michelle Obama í líki apa. Það hefur nú verið fjarlægt.Myndskeiðið, þar sem lagið The Lion Sleeps Tonight ómaði í bakgrunni, var meðal aragrúa annarra færslna Trumps í gær þar sem hann enn einu sinni sakaði Demókrata ranglega um kosningasvindl 2020 sem hefði kostað hann forsetaembættið.Myndskeiðið kveikti mikla reiði þvert á flokka vegna þeirra rasísku skilaboða sem það sendi. Demókratar sögðu athæfi forsetans andstyggilegt og Tim Scott, eini svarti öldungadeildarþingmaður Repúblikana, sagðist aldrei hafa séð annað eins kynþáttahatur koma frá Hvíta húsinu. Hann hvatti Trump, líkt og fleiri, til að fjarlægja myndskeiðið umsvifalaust. Fjölmiðlafulltrúinn Karoli