Saksóknarar í Frakklandi hafa hleypt af stokkunum rannsókn á meintum skattalagabrotum Jacks Lang, fyrrverandi mennta- og menningarmálaráðherra í fjölda ríkisstjórna, og Caroline dóttur hans.Rannsóknin varðar meint fjárhagsleg tengsl við kynferðisbrotamanninn og fjárfestinn Jeffrey Epstein. Feðginanna er getið meira en 670 sinnum í skjölum sem bandaríska dómsmálaráðuneytið birti fyrir viku, samkvæmt fréttum Le Figaro.Fleiri miðlar segja hann iðulega hafa leitað fjárframlaga frá Epstein eða beðið hann um aðra greiða. Jack Lang hefur sagst taka fulla ábyrgð á samskiptum sínum við Epstein en kveðst ekkert hafa vitað um glæpsamlegt athæfi hans, þrátt fyrir að hann hlaut dóm árið 2008.Þess hefur verið krafist að Lang segi af sér sem stjórnandi IMA, franskrar menningarstofnunar hins arabíska heim