Matsfyrirtækið Fitch Ratings hefur hækkað lánshæfismat Íslands úr A í A+ með stöðugum horfum. Í tilkynningu á vef stjórnarráðsins segir að Fitch hafi jafnframt afturkallað áframhaldandi mat á lánshæfiseinkunn ríkissjóðs. Þar segir einnig að hækkunin endurspegli styrk opinberra fjármála og lækkandi hlutfall skulda sem byggi á skuldbindingu um festu og aðhald í ríkisfjármálum og áformum um að láta af hallarekstri ríkissjóðs. Ákvörðun Fitch megi helst rekja til sterkari stöðu ríkissjóðs og aukins svigrúms í ríkisfjármálum. Traustur fjármálageiri á Íslandi ýtir undir matið ásamt langri hefð fyrir friðsamlegum umbreytingum í stjórnmálum, traustu lýðræði, skilvirkni réttarkerfisins og lítilli spillingu. Ísland hefur þó verið eftirbátur annarra Norðurlanda við mælingar á spillingu.Einkageirinn sé