Hryðjuverkasamtökin sem kenna sig við íslamskt ríki segjast standa að baki sprengjutilræði sem kostaði minnst 31 mannslíf í pakistönsku höfuðborginni Islamabad í dag. Fólk safnaðist saman við moskuna og aðstoðaði björgunarlið við að koma særðu fólki út.EPA / SOHAIL SHAHZADSamtökin lýstu þessu yfir á samskiptamiðlinum Telegram. Sjálfsmorðssprengjumaður framdi ódæðið í sjítamosku þar sem yfir 170 til viðbótar særðust og þrjú sjúkrahús borgarinnar lýstu yfir neyðarástandi vegna ástandsins sem skapaðist.