Jon Ruben, karlmaður á áttræðisaldri, var í dag dæmdur í þrjátíu og eins árs fangelsi í Bretlandi fyrir að misnota unga drengi kynferðislega í kristnum sumarbúðum sem hann rak síðasta sumar í sýslunni Leicestershire.Rannsókn á glæpum Rubens hefur ekki verið lokið. Lögregluyfirvöld í Leicestershire rannsaka nú aðra hópa sem Ruben hefur unnið með í fortíðinni.Ruben er sagður hafa byrlað piltum róandi lyf með því að strá þeim yfir sætindi sem hann plataði þá til að borða. Þegar piltarnir voru steinsofnaðir laumaðist Ruben inn í herbergi þeirra og valdi sér fórnarlamb. ÁTTA DRENGIR FÆRÐIR Á SJÚKRAHÚS Sjálfboðaliðar í sumarbúðunum gerðu yfirvöldum viðvart um málið eftir að þeir urðu varir við að piltarnir væru enn ringlaðir, þreytulegir og með ógleði daginn eftir voðaverk Rubens.Átta drengir