Stjórnvöld í Tyrklandi hafa óskað eftir því að opna sendiráð á Íslandi.Í tilkynningu á vef Stjórnarráðs Íslands er greint frá símafundi Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra og Hakans Fidans, utanríkisráðherra Tyrklands, sem var í gær. Ráðherrarnir ræddu sameiginleg hagsmunamál ríkjanna, vaxandi tvíhliða samstarf þeirra á alþjóðasviðinu og málefni Gaza, Úkraínu og Grænlands.„Ég þakkaði honum fyrir þann áhuga sem tyrknesk stjórnvöld hafa sýnt Íslandi og norðurslóðum að undanförnu. Þjóðir okkar eiga í góðum tvíhliða samskiptum og við erum auðvitað bandamenn til áratuga í Atlantshafsbandalaginu,“ segir Þorgerður Katrín.Fidan tilkynnti Þorgerði Katrínu ósk stjórnvalda í Tyrklandi um að koma á fót sendiráði hérlendis síðar á árinu.„Þetta eru góðar fréttir – enda mikilvægt að treyst